|
|
11.12.2008 21:22:00 / iris
11 Great Lime kilns Southwater Horsham RH13 9JL West Sussex UK Allir að senda jólakort!! nú eða pakka!!
»
03.06.2008 21:45:24 / iris
Hér er sko búin að vera sól og blíða, þá má maður sko ekkert vera af því að hanga í tölvunni, var of upptekin við að brenna úti í sólinni .... svo kom rigningin og þá má maður ekkert vera að því að hanga í tölvunni, bæði vegna þess að maður er að jafna sig á brunanum og svo þarf maður að ná upp því sem maður mátti ekki vera að því að gera þegar maður var í brunaliðinu .... vó þetta var langt... Auðvitað búið að vera rosa gaman og mikið fjör á bænum, en ekki hvað! Andri fer hér út í skóg og gerir sitt besta ásamt Nathan nágranna að grafa göng og segir svo við mig að hann vonar nú samt að grafi sig ekki upp í einhverjum garði hjá einhverju fólki. Dóóó! Whats the change ... Búin að læra að hjóla loksins og eingöngu vegna þess að hann var orðin þreyttur á því að mamman og yngri bróðir hans héldu því fram að hann kynni það ekki og botninum var náð þegar Arnar bauðst til að kenna honum ... Hann kom heim settist á hjólið og hjólaði í burtu... What! Við stóðum gapandi eftir  ... Andri hefur og enn segist ekki vilja kunna að hjóla því hann ætlar að fá sér mótorhjól þegar hann verður stór!!! talandi um það þá ætlar hann líka að verða ROCKSTAR þegar hann verður stór eins og Hannah Montana (ef þið vitið hver það er) og nú keppist hann við að semja texta og sofnar við Hannah Montana í græunum... vó hvað maður er að verða mikill unglingur enda biður hann spenntur eftir að fá hárin undir hendurnar og kíkjir reglulega... Óboj..
Arnar hefur breyst alveg ótrúlega á stuttum tíma..Hann les og skrifar og finnst það alveg rosalega spennandi.... verst að hann er ekki eins duglegur að læra að pissa ofaní klósettið, taka til í herberginu sínu og hættir að fela skýtugu fötin sín bakvið hurð, undir rúmi eða einhverstaðar þar sem mamman finnur þau ekki fyrr en líklega í næstu flutningum ... Hann er allur farin að spá í stelpurnar núna eða frekar gellur eins og hann orðar það á íslensku..Sexy ladys á ensku ... stelpurnar í bekknum eru samt ekki sexy ladys þær eru bara girls... little girls .. já hann ætla að hafa þær eldri!! Í morgun setist hann á rúmið hjá mömmu sinni og vildi endilega segja henni frá draumnum sem honum hafði dreymt um nóttina...There was a sexy lady, in pants and brjóst holder... in my bed and we were kissing!!!!! WHAT   ... Já það er hægt að segja að hann byrji snemma.. ég auðvitað fór að reyna að draga upp úr honum hvaðan hann hefði það, eða hvar hann hefði séð svoleiðis eða bara hvernig barninum hafi dottið þetta í hug... klór klór í hausinn!! Eina svarið var bara með bros á vör, No where no where and I thought it was in real life .... hihihi jæja þá, mamman verður þá bara að lofa honum að njóta þess...Já hann kemur á óvart á hverjum degi og er rosa skemmtilegur spekúlari og mjög uppátækjasamur. Adam, Adam, Adam..... hann er nátturulega gullið okkar allra en er þó að breytast í öskrandi villidýr ... bræður hans elska hann útaf lífinu og hann nýtir þá ást sér til framdráttar út í ystu æsar ...er duglegur að halda í við bræður sína og fylgir þeim fast á eftir og gefur heldur ekkert eftir í töffaraskapnum eða gannislögunum sem fara fram hér í garðinum... og ef eitthvað er þá stendur hann oftast uppi sem sigurvegari og stóru strákarnir hlaupa undan honum, kannski ekki skrýtið þegar hann nálgast þá á hlaupum, öskrandi og með plast krikketkylfu á lofti ...Dóóóó Halldór og ég höfum það bara fínt líka... 
»
20.02.2008 09:49:46 / iris
Hvað er málið  Því meira sem maður tekur til því meira drasl verður... Er farin að hallast af því að húsið sé gallað  ef tekið er til í einu herbergi virðast öll hin verða fyrir sprengju, búin til úr drasli...  Óboj mamma og pabbi að koma á morgun og húsmóðurin að reyna að taka til, já ég get sko allveg sagt REYNA... sagan endalusa...  Arnars herbergi er orðið hreint og voða fínt, komið nýtt rúm og minn rosa ánægður með þetta allt saman, nú vantar bara kommóðu undir fötin og gardýnur (sem eru til en húsbóndinn (sko karlkynshúsbóndin) á að setja upp, þegar hann sést næst) Til að fyrirbyggja allan vafa þá er ég auðvitað húsbóndinn á mínu heimili  Andra herbergi er að klárast en eins og áður þá bíðum við spennt eftir karlkynshúsbóndanum til að setja upp hillur og gardýnur  Jæja þá er tuðið á enda í dag, best að fara að tækla þetta gallaða hús... kannski ég finni ruslaálf einhverstaðar í felum og belive me... honum verður hent út í sjó.  Kallinn með hattinn stendur upp við staur borgar ekki skattinn því hann á engan aur hausinn ofaní maga maginn oní skó reima svo fyrir og kasta honum út í sjó
»
18.02.2008 09:37:19 / iris
Jæja þá erum við kominn í viku frí úr skóla og byrjar mánudagurinn bara rólega fyrir utan það að auðvitað vöknuðu strákarnir snemma, meira að segja fyrr en þegar við eigum að fara ískóla þannig að kannski get ég ekki vonað eftir því að þessi vika sé eitthvað um að sofa fram eftir  Annars er bara allt fínt héðan, flott veður og strákarnir duglegir að leika sér úti, þeir kalla það að fara út í skóg, tré hér fyrir utan. Annars þegar Andri fer þar út virðist hann alltaf fá eitthvað í augað. eða gerst 2x. Síðast var það sandkorn og við lentum á slyso... í gær var það heil grein  en sluppum samt við ferð á slysó, hann er bara bólgin og rauður en ekkert alvarlegt... ótrúlegt, verður næst sendur út í skóg með hlífðargleraugu  Adam Örn stækkar og stækkar og virðist verða meiri týpa með hverjum deginu, taktarnir og hreyfingarnar sem hann er að koma upp með er bara frábært, hermir eftir öllu en vill ekkert tala samt  Allri með bullandi kvef og held að hor fljóti hér í lítratali...  jakk ég veit.. en svona er þetta hér á þessu heimili... Amma og Afi frá Hafnarfirði ætla að koma á fimmtudaginn og bíða allir spenntir eftir þeim degi. Arnar bíður aðvísu líka eftir morgundeginum því þá kemur nýja rúmið hans, það er sko hátt með tjaldi eða húsi undir og bíður Arnar og Connor (nágranninn) spenntir eftir að það kemur og tala alltaf um rúmið "okkar" (þeirra) bara frábærir guttar enda eru þeir endalaust í einhverjum ýmindunarleik... jæja komið gott núna af fréttum, þar til næst
»
15.02.2008 17:45:54 / iris
Ætlaði aldrei að ná að komast inn á þetta nýja svæði, djíííí
en annars allt gott héðan. man ekkert hvað ég ætlaði að segja, varð svo hissa þegar ég komst inn. 
Þar til næst þá.
enda hér með á "ljóði" sem Andri bjó til, handa stelpu í skólanum í tilefni valintínusardegsins sem var í gær. Ahh þessi elska svo rómó
Your eyes are cristal blue Your face is beautiful like a flower You are really pretty
»
11.01.2008 23:17:17 / iris
já komin með internetið, sit núna í nýja sófanum mínum í nýja húsinu mínu með nýja internetið....þetta er held ég eins og að endurfæðast (ekki að ég viti hvernig það er) en allavega að fá internetið aftur eftir nokkrar vikur... óboj... hvað er hægt að gera þegar maður er ekki nettengdur. ég er bara búin að mála nokkra veggi, koma skipulagi á hitt og þetta... já from now on verður örugglega ekki neitt meira gert... thank god að ég pantaði pizzu fyrir börnin í kvöld, annars hefðu þau ekki fengið neitt að borða. "Bíddu ástin, mamma er aðeins í tölvunni" já maður er langt leiddur. shitt en allavega fyrsta síðan sem var slegin upp var mbl.is og svo bloggrúnturinn. jú það er allt þarna ennþá... Ísland er í góðum gír og enn til þótt að ég hafi ekki séð moggan í nokkrar vikur...fjúkk jæja en allavega held ég skelli mér að sofa núna en stefni á að setja inn myndir svona hvað á hverju þó að þrjóskupúkinn í mér er eiginlega að neita því, hann vill nefnilega meina það að fólk sér okkur svo oft að það finnst það alveg vera með á nótunum hvað er í gangi og eins og margir vita þá ef maður sér einhverja persónu nógu oft í sjónvarpi eða tölvu þá finnst manni maður þekkja viðkomandi... ég vil kenna minni miklu þrautsegju að setja inn nýjar myndir það oft. þess vegna fáum við svona fáar heimsóknir.... Ég er allavega með það á hreinu að ekki erum við svona leiðinleg... við þetta skemmtilega fólk.
»
18.12.2007 16:32:38 / iris
Jabbadabbadúúúúúú Vorum að fá að vita að við erum að fara að flytja á morgun...fáum lyklana núna fyrir 6.....  Nýja heimilsfangið er: 11 great Lime Kilns Southwater Horsham RH13 9JL UK best að fara að pakka
»
18.12.2007 14:30:06 / iris
SHIT klukkan orðin 14.31 og ég bíð ennþá, er ég að fara að flytja á morgun or not er búin að kíkja 100x á símann, hvort hann sé ekki örugglega í lagi, jú hann virkar.. allavega er von á nýrri þvottavél í nýja húsið á fimtudag þannig að það er eins gott að við séum að fara að flytja... Jibbí og vonandi fylgir þessi fína flotta græna ruslafata með húsinu... Já allt á uppleið og kannski er þá bara það næsta að vona að það verði hvít jól æj kannski það sé einum of mikils til að ætlast. en hei allavega hangikjöt og nóa konfekt... Im happy
»
17.12.2007 16:55:59 / iris
»
04.12.2007 13:39:28 / iris
Andri fór í sturtu um daginn, sko stóru sturtuna, er að æfa sig í að verða stór og vanalega hefur mamman haldði á stútnum fyrir hann. en það kom að því að hann prufaði stóru sturtuna, mamman stóð og horfði á tilbúin með handklæði til að þurka ef það færi í augun... já já ´hann er eins og mamman, sem heldur því fram að það sé hægt að drukkna í sturtu Nú allavega stóð hann sig eins og hetja með sápuna, shampoið og allt það. þegar sturtu stundin var búin og mamman byrjaði að hrósa og vildi endilega meina það að hann hafði farið í sturtu eins og stóru strákarnir og hann gæti þetta alveg..  fagnar hann þá með því að setja hendurnar í loftið..... galar svo hátt; JIBBí NOW I WILL GET HAIR UNDER MY ELBOWS!!!    Íslenskað: Jibbí nú fæ ég hár undir olbogana.... Hann hefur nefnilega sagt að þegar hann verður stór fær hann hár undir hendurnar...  Annars er allt fínt að frétta héðan, ruslatunnan ekki fundin, þvottavélin biluð og eldhúsvaskurinn stíflaður en hei eru ekki að koma JÓL 
»
02.12.2007 12:36:53 / iris
Tapað - fundið Tapast hefur ruslatunna að heimili Cedar drive, southwater.... sást síðast til hennar á fimmtudagskvöld á leið í tæmingu, hún sá síðast græn mað grænu loki, slimline og límmiða að framan með addressunni á. Ef einhver hefur séð til hennar eða hefur einhverjar upplýsingar sem gæta leitt til fundar.. vinsamlegast svari í athugasemdum..hennar er sárt saknað  Nýr heimilismeðlimur hefur verið tekin inn á heimilið, Hann heitir Jónathan Snær Hansen Halldórsson , Hann er EKKI stelpudót og er strákur með allar græjur . Heilsast pabbanum (arnari) og dúkku (Jónathan) vel. Hugsað er mjög vel um hann og er hann tekin með hvert sem er þar með talið klósettferðir.. beðið er með spenningi að fá að fara út að labba með hann. Afinn (Halldór) heilsast ekki eins vel og er með áhyggjur af þessu öllu saman, heldur að mamman (Iris) og Pabbinn (Arnar) séu búin að missa það og eru allt annað en heilbrigð á sál og líkama ÞAu eru svo dugleg að tína til teppi, rúm og annað handa nýja fjölskyldumeðliminum... I LOVE IT.. meira að segja Lúðvík minn er kominn í heimsókn og fær að vera með sem leikfélagi.. Jæja farin að taka til... 
»
30.11.2007 14:14:42 / iris
Nú er það nýjasta þegar jólin nálgast að þegar strákarnir sitja og horfa á sjónvarpið eða skoða blöð þá heyrist alltaf.... Ég vil svona í jólagjöf, ég vil svona í jólagjöf... nú hefur Arnari langað í dúkku í þónokkurn tíma eða eiginlega síðan við vorum á ísafirði í sumar...en komið upp svona endrum og eins að honum langi í dúkku. nú jæja, nú eru auglýsingarnar á fullu svona fyrir jól og hefur undanfarið heyrst að I want this for christmas og mynd af dúkku á skjánum... og svo heyrst í stóra bróðir. nei arnar þetta er stelpudót ... mamma!! Arnar vill stelpudót... hinn neitar stöðugt að dúkka sé stelpudót og vitnar í það sem mamman hafði sagt einhvern tíman að strákar meiga líka eiga dúkkur, þær eru ekkert endilega stelpudót... svo mamma fór að útskýra þetta fyrir Andra og já já eftir smá tíma hann sagði bara já já ok.. einn alveg búin að gefast upp á þessarri mömmu, hún veit greinilega ekkert um þetta..  Í gær heyrðist svo í Arnari að tala við Andra: I dont want girltoys, I just want a doll !!!  Ohh það er svo yndislegt með hann Arnar að þegar hann tekur eitthvað í sig þá skiptir það hann engu máli hvað öðrum finnst. Hann þarf ekki að vera eins og hinir. YNDISLEGUR  held að ég láti það eftir honum og fer með hann niður í bæ og festi kaup á einni dúkku, hei hvað er það oft sem ég hef sjéns á að kaupa dúkku handa börnunum mínum 
»
22.11.2007 21:02:32 / iris
var að skila inn 1 verkefninu mínu, fékk 100%   ha ha ha voða ánægð, ekki það að ég viti eitthvað um það sem ég hef verið að lesa en hvað um það... ekki spyrja mig um það þá verður þetta í góðu pestirnar hér ætla ekkert að hætta, ætli þetta sé í lýsinu neeeeiiiii Adam lasinn, með hita og niðurgang  Arnar lasinn, með niðurgang já þannig að það er hægt að segja að ég sé í deep S**T  Andri klaki auðvitað stendur upp úr þessum pestum og má ekkert vera að því að vera lasinn, nei takk.... það virðist alltaf vera hann sem sleppur, þarf að fara að gefa strákunum það sama og hann fær... humm þeir eru að fá það sama!!! okey þá, ég segi bara upp áskriftinni hjá fröken flensu... síja beibs. 
»
15.11.2007 17:11:24 / iris
Adam er í leikfimi einu sinni í viku, hópurinn heitir tumble tots og er verið að þjálfa hann í að prýla og ýmsar fínhreyfingar og samhæfingar. en allavega í dag fékk minn maður verðlaun eða skirteyni upp á það að hann kann að ganga!!!  eftir 6 til 7 vikur núna verður hann þá fluttur upp um hóp og verður með stóru krökkunum sem kunna að ganga... já hann er sko ekkert smábarn lengur. jæja þarf að fara að krota á fötin hans Arnars því á morgun er non uniform day og hann á að mæta í spotted eða blettóttum fötum og þar sem við eigum ekki svoleiðis, keypti mamman stórann túss og verða tekin framm einhver gömul föt og þau "blettuð" síja leiter og já það er áætlað að skrifa undir og skipta á samningum vegna nýja húsins í næstu viku og svo tveimur vikum seinna verður afhending. jibbí jei þannig að við ættum að ná að vera kominn inn fyrir jól 
»
13.11.2007 22:05:05 / iris
Arnar kom heim úr skólanum i dag og sagði mér að jósep og maría væru aðalfólkið... humm nú er nefnilega verið að æfa skólaleikritið í skólanum og viti menn. Þegar við stóðum á leikvellinum og töluðum við aðra mömmu þá fer arnar að segja henni að hann ætti að vera annað hvort maría mey eða jósep, nú segir hún. já ég á að vera María mey held ég. híhí við fórum nú bara að hlæja. hann vissi greynilega ekkert hvað væri í gangi... Þegar Andri kemur svo úr skólanum fer hann að segja honum að hann eigi að leika Maríu mey í leikritinu og þegar Andri segir honum að hún sé stelpa þá breytist svipurinn á mínum manni hugsar aðeins og segir svo.... HUMM I MUST BE JOSEP THEN... algjört æði þessi drengur. Já það er rétt hjá honum hann á að leika jósep, þannig að nú er mamman sveitt á internetinu að finna flottan búning handa verðandi stjörnu... 
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|